Thursday, May 14, 2009

Örstutt í morgunsárið :)

Núna er ég að taka mig til fyrir stutta dagsferð til Helsinki. Annars er bara allt að verða klárt fyrir brottför... eða ekki? Ég er ekkert byrjuð að pakka! Eða neitt!!

Nú fer að komast ferðastress í mig. En ég mun redda þessu öllu. Ég er allavega löngu komin með plan. Ég sigli til Stokkhólms, gisti þar á hosteli í tvær nætur og flýg svo heim. Sellóstelpa úr skólanum sem hefur aðsetur í Stokkhólmi passar sellóið og kannski stærstu ferðatöskuna á meðan.

En nú má ég ekki missa af lestinni :)

Bless í bili!

2 comments:

  1. Heim eftir eina viku!!
    :-)
    M

    ReplyDelete
  2. Já, nú styttist í að við hittumst :). Þú ert pöntuð í fisk mánudagskvöldið 25. maí :).

    Knús, Hafdís

    ReplyDelete