Það er sem sagt ekkert sérlega merkilegt að frétta nema að ég eignast sífellt fleiri vini hérna í Kuunsilta (fyrir þá sem ekki vita þá er það háskólagarður í úthverfi Turku þar sem nemum af erlendum uppruna er hrúgað saman, þeim yfirleitt til mikillar ánægju!!).
Ég er byrjuð í vetrarfríi sem stendur yfir í eina viku og verður notað aðallega til æfinga en einnig til að blanda geði, en ekki til að renna sér á skíðum eins og gert er ráð fyrir. Þetta er nefninlega skíðafríið!
Skólinn minn, Turun Ammatikorkeakoulu, á reyndar von á merkum gesti núna strax eftir vetrafrí. Hann heitir Robert Irving og er sellóleikari frá Glasgow. Ég á að mæta í tíma til hans og spila eitthvað fallegt og skemmtilegt. Þá er bara að krossleggja fingur og vona að hann sé ekki einn þeirra sem lagði ævisparnaðinn og skírnarpeninga barna sinna inn á IceSave reikning :)
Svo verð ég að spýta í lófana og halda áfram að æfa mig í að telja á finnsku.
Þar til næst....
Hildur
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Hæ hæ
ReplyDeleteGaman að heyra fréttir:-)
Kv. Halla beibí
Gaman að heyra hvað allt er skemmtilegt hjá þér í AMK. Ég er einmitt í semesterfríi líka, þvílík snilld að fá smá frí!
ReplyDeleteGangi þér vel í tíma hjá herra Irving, þessir Bretar eru nú svo hressir ;)
Kv. Ásta