Thursday, February 26, 2009

Þreyta

Þessi vika hefur verið algjört maraþon. Á mánudaginn sótti ég tíma hjá skoska sellóleikaranum Robert Irving. Hann er afskaplega ólíkur öðrum kennurum sem ég hef hitt. Hann er algjör rokkari, minnir eiginlega á Mick Jagger, fyrir utan sellóið!

Hann talaði næstum ekki neitt um tækni, sem var eiginlega ágætt, því ég hef hugsað óendanlega mikið um tæknileg málefni síðustu vikur. Hann talaði um ímyndunarafl og tilfinningar í tónlist og svo talaði hann mikið um upprunalegan stíl í Bach, sem er mjög nýtt fyrir mér.

Á þriðjudag hitti ég meðleikarann minn og Errki. Í skólanum mínum erum við þrjú saman í tíma en í þetta sinn var ég sú eina sem hafði eitthvað að spila svo ég fékk klukkustund með Errki og Mikael, píanóleikaranum.

Í gær hitti ég Irving aftur svo að ég fékk einkatíma þrjá daga í röð. Það hljómar kannski ekki mikið, en trúið mér, ég var uppgefin í gær! Á mjög þægilegan hátt samt því allar kennslustundirnar gengu vel.

Ég hlakka mikið til að fara til Lapplands, við leggjum af stað kl 20 á laugardagskvöldi, eigum að sofa í rútunni og vakna morguninn eftir í Rovaniemi. Ég veit nú ekki alveg hversu mikið maður mun sofa... en ég verð að reyna. Á dagskrá ferðarinnar er sjósauna (þá fer maður í gegnum vök ofan í sjóinn og svo í sauna!), hundasleði, vélsleði og eitthvað af partýum eins og búast mátti við :)

Moi moi

Hildur

3 comments:

  1. Hæ, hæ, Hildur okkar.
    Það hlýtur að vera gaman að fara til Lapplands og Dagný fór fyrir nokkrum árum á sama stað og þú ert að fara til (og ert komin þangað núna)
    Kossar og knús, amogaf.

    ReplyDelete
  2. hæ elsku hildur!
    Hugsa oft til þín og vona að allt gangi vel hjá þér úti!! Njóttu ævintýrisins og því að kynnast finnskri menningu :-)
    Kær kveðja, Sirrý

    ReplyDelete
  3. Sæl elsku Hildur mín
    Fer þessi þreyta ekki að verða liðin hjá? Fer ekki að koma ný færsla? Ég er farin að bíða.
    Kossó!
    M

    ReplyDelete