Thursday, February 5, 2009

Grámygla

Í dag er svolítið grámyglulegur dagur. Ég fer ekki í tíma til Erkki eins og stóð til heldur hitti ég hann á laugardaginn í staðinn. Þess vegna er eiginlega laugardagur í dag, en ekki fimmtudagur. Ég leyfði mér því að sofa dálítið frameftir og núna sit ég með sveittan skalla og læri finnskar raðtölur. Sellóið verður að bíða þar til í kvöld, því að ef maður mætir til æfinga síðar en klukan hálf tíu þá er alls óvíst að það séu einhverjar stofur lausar. Alveg eins og í Tónó í gamla daga! Þar að auki æfi ég mig lang best og mest byrji ég klukkan hálf níu. Eða ef ég byrja klukkan hálf átta á kvöldin. Ég er allavega ekki miðdegistýpa!

En finnskan tekur líka sinn tíma. Svo verð ég víst líka að búa til námsefni fyrir verðandi íslenskunema. Já, ég get ekki á mér setið, ég verð að kenna eitthvað sama hvar ég er :)
Svo er mál með vexti að ég hef tekið undir minn verndarvæng unga konu sem ætlar að koma sem skiptinemi til Íslands og hana langar að kunna undirstöðuatriðin áður en hún heldur utan. Eftir allt sem finnar hafa gert fyrir mig (og það er slatti, þó að sumt hafi tekið ansi langan tíma!) þá finnst mér sjálfsagt að hjálpa þeim á móti.

En einn tveir og þrír!

Finnska!

Saknikoss, Híbí

2 comments:

  1. Hæ hæ

    Sjáumst á msn eða skype.

    Kv. Halla (beibí)

    ReplyDelete
  2. Sæl Hildur okkar. Gaman að lesa fréttir frá þér, það er greinilega nóg að gera og tíminn verður fljótur að líða til vors. Og áður en maður veit af verður komið sumar. Það verður gaman hjá þér að fylgjast með breytingunum sem verða þegar fer að vora í Finnlandi.
    Kossar og knús frá amogaf.

    ReplyDelete