Tuesday, January 13, 2009

Þráðlaust net í skólanum

Hægt og hægt þokast tölvumálin mín í átt að nútímanum :)
Nú get ég skráð tölvuna mína inn á þráðlaust net í skólanum! Gaman gaman. Það eru ennþá örugglega tvær vikur í að ég geti notað netið heima. En það líður hratt því nú hef ég eiginlega allt annað. Strætókort, símanúmer, lykla að skólanum og hljóðfærageymslunni og net...þ.e.a.s þegar ég er a) á bókasafninu eða b) við hliðina á bókasafninu. Annars er bara allt gott að frétta og nú fer allt að fara í gang. Ég er að spá í að fara á finnskunámskeið sem hefst eftir viku. Finnska fyrir byrjendur. Ég geri mér að vísu ekki vonir um að læra málið á einu námskeiði, en það er alltaf gaman að fara í eitthvað sem allir eru jafn lélegir í :)

En bless í bili!

Ps. Ernir, ef þú lest þetta, ég hef öðlast frægð hér fyrir að vera vinkona þín!

4 comments:

  1. Yess þá getum við msnast á íslensku :) þú verður svo að kenna mér finnsku

    Bless bless Halla sissa

    ReplyDelete
  2. Ég vona að það sé jákvætt að vera vinkona mín og að þú hafir ekki orðið fyrir of miklu aðkasti sökum þess ;O)

    Eero

    ReplyDelete
  3. Kva! Ekkert blogg? Það hlýtur að vera brjálað að gera ;)...

    ReplyDelete