Það er búið að vera alveg hrikalegur kuldi hérna síðustu tvo eða þrjá dagana. Allt að 12 eða 13 stiga frost...brr...ég fæ alveg naglakul af því að sjá Finnanna húka úti vettlingalausa að reykja! Gott að vera ó-reykingamaður núna :)
En núna er tiltölulega hlýtt og það snjóar smávegis.
Fyrir þá sem ekki vita þá er Turku jólaborg Finnlands og þeir eru ekkert að flýta sér að taka niður jólaskrautið. Þeir halda því líka fram að jólasveinninn sjálfur búi í Finnlandi, en ég verð nú að leiðrétta þann leiða misskilning ;)
Í gær var húsmæðradagur hjá okkur stelpunum í Ritzinkuja 1 U. Við settum í þvottavél, keyprum inn og þrifum. Og dagurinn endaði svo á skemmtistað í miðbænum. Það var mjög gaman. Ég eldaði mér kjúklingarétt, enda orðin hundleið á pasta!
En ég er bara að æfa alveg á fullu til að verða betri sellisti!
Moi moi (bless bless)
Hæ, hæ, velkomin í húsmæðrahópinn.
ReplyDeleteKossar og knús bara am.
Hæ krútt! Gaman að lesa. Gangi þér vel við sellóæfingarnar. Arbeiten arbeiten und nicht locker lassen eins og þeir segja hér í þýskalandi...haha. Er að reyna að tileinka mér þetta viðhorf. Það gengur ágætlega. Knús!
ReplyDeleteHæ Híbsa
ReplyDeleteþýðir semsagt moi bless (mig langar nefninlega að læra finnsku :-p)
Kv. Halla systir