Já fyrirgefðu mamma mín hvað ég slóra mikið :)
Hér kemur færslan um Lapplandsferðina miklu: 31. mars til 8. feb dvaldi ég í Levi í Lapplandi ásamt 44 öðrum skiptinemum og 6 fararstjórum. Við gistum í nokkrum smáhýsum, ég var í litlu húsi með 5 öðrum stúlkum. Fyrsti dagurinn fór aðallega í að keyra þangað en einnin gáfum við okkur tíma til að heimsækja jólasveininn. Annan daginn fór ég á gönguskíði, mér til mikils erfiðis. Það var samt gaman. Hvert einasta kvöld var svo eitthvað um að vera í stærsta bústaðnum. Þriðjudagurinn var notaður til að jafna mig af hrikalegustu harðsperrum sem ég hef nokkru sinni haft og svo skrapp ég í spa, sem var heldur kostnaðarsamt miðað við hvað nuddpotturinn var kaldur. Á miðvikudaginn fór ég í gönguferð á snjóþrúgum, það var ótrúlega gaman! Seinni partinn ók ég svo snjósleða með félaga minn James sem farþega. Það var ekki síður skemmtilegt. Á fimmtudeginum var farið á hundasleða og svo í sauna og vök. Þá fer maður ofan í vök á stöðuvatni og svo inn í saunu. Afar spes upplifun. Föstudagurinn var svo notaður til að aka heim og ég komst heim kl 4 um nóttina.
Takk fyrir mig Lappland!
Á morgun ætla ég að halda áfram að ferðast, Dublin....here I come!
Góða ferð Hildur mín :-) og fara varlega!
ReplyDeleteKossó
M
Frábærar myndir!!
ReplyDeleteKossó
Pabs og Halla
Vá, hljómar æðislega. Ég ligg í kvefi, afar spennandi.
ReplyDeleteKnús, Hafdís
Hey, mér tókst að kommenta!!! Þetta er ekki búið að virka í margar vikur og mánuði!! Jibbíí...
ReplyDelete