Það er endalaus fjárans vetur hér sem er við það að gera mig sturlaða!
Það snjóar í augnablikinu...
Jæja, það þýðir víst lítið að pirra sig á því. Í dag fór ég í skólann og æfði mig og núna er ég að basla við að setja saman fyrirlestur um Ísland til að flytja á alþjóðlegum degi 1. apríl. Samt alveg bannað að plata! Annars væri nú skemmtilegt að segja að hagvöxtur Íslands sé 58% og að atvinnuleysi sé undir 1%. En maður verður víst að vera hreinskilinn. Ég ætla reyndar bara að tala um náttúrufegurð, þá þarf ég ekkert að plata.
Það var gaman í Dublin, en mig langar svo að setja inn fleiri Lapplandsmyndir svo ég sleppi því að setja inn Dublinar-myndir því það hafa svo margir verið þar áður. Næst á dagskrá er að skreppa í hópferð til Riga með 7 erlendum nemum frá Tékklandi, Nepal, Tyrklandi o.fl. Við förum 4. apríl og komum 6. aprlíl heim. Munur að hafa RyanAir í nágrenninu! Þá skiptir engu þó það sé örlítil kreppa :)
Guuuuuð hvað þetta er sætur krúsubúttííííí þessi sæti hvolpur.. ÆÆÆ ég er svooo abbó. Kveðja Halla syssss
ReplyDeleteJá, ekkert smá sætur dúlluhvolpur! Og ég er abbó með RyanAir ;). Knúsl, Hafdís
ReplyDeleteHæ, hæ, sætur hvolpur sem þú heldur á, ertu nokkuð komin með hundadellu?
ReplyDeleteJá stundum lætur vorið bíða eftir sér og ég segi við fólk sem er að væla yfir því að vorið sé ekki komið að það sé ekki raunhæft að halda að það komi fyrr en í apríl maí, að minnsta kosti ekki á Íslandi.
Kossar og knús, amogaf.
Mér sýnist vorið vera á næsta leiti hjá þér!?
ReplyDeleteKossó,
M