Saturday, January 31, 2009

Loksins nýtt blogg!

Já það er aldeilis kominn tími á nýtt blogg :)

Ég fór í dag á minn fyrsta íshokkíleik, þar sem Turku atti kappi við Tampere. Íshokkí er ákaflega ofbeldisfullur leikur, t.a.m. þurfti að stía sundur leikmönnum alls fimm sinnum í þessum leik. Og þeir slást í fullri alvöru, þrátt fyrir að þeir séu reknir út af í 2 mínútur fyrir þá sök. Stemmningin var rosaleg! Öskur og hávaði eins og vera ber (samt ekki hún Veera vinkona mín!) en því miður tapaði Turku fyrir Tampere :(

Fyrr um daginn fór ég og fjárfesti í skáldsögu á sænsku og fékk mé einnig ókeypis bókasafnskort, en bókasafnið hér í Turku er það besta sem ég hef nokkurn tíma séð. Nótna -og geisladiskadeildin er yfirnáttúrulega stór!

Í gær var svo partý... nema hvað! Það er aftur orðið ógeðslega kalt, enda var sólskin og blíða í dag. Það býður alltaf upp á nístingsfrost á kvöldin. Ótrúlegt að janúar byrji á morgun!

Koss og knús,
Híbí

4 comments:

  1. Ooooh ansi er ég! Febrúar byrjar á morgun!

    ReplyDelete
  2. hahaha ég var að fara að koma með janúar kommentið!
    Alltaf gaman að lesa færslurnar þínar og sjá hvernig allt gengur. Væri alveg til í bókasafn með mega nótnadeild núna!

    ReplyDelete
  3. Láttu þér ekki verða kalt dúllý mín!
    Kossó.
    M

    ReplyDelete
  4. Hehe janúar á morgun ekki aaaaalveg.

    Kv. Halla

    ReplyDelete