Jæja, þá er loksins hægt að netast almennilega. Ég fékk netið rétt áðan og ég er alveg alsæl með það. Annars er nú ekki mikið að frétta nema að ég fjárfesti í stafrænni myndavél á dögunum. Það er svo ótrúlega fallegt hérna í nágrenninu að ég gat ekki á mér setið að kaupa vél til að festa dýrðina á filmu.
Núna eru ljósaskipti og það er þykkur jólasnjór yfir öllu. Ég á alveg hreint frábæra nágranna, einn þeirra, Dima frá Rússlandi, vill endilega gera mig að metalhaus og lét mig nýverið hafa myndlykil með 3 klst af þungarokki. Honum fannst óhæfa að Íslendingur á borð við mig hefði aldrei hlustað á Viking Metal, sem er þungarokk sem fjallar um æsina og jötnana og það lið.
Talandi um Ísland, hér í skiptinemafjöldanum þykir ákaflega merkilegt að vera Íslendingur og allir sína þjóðerni mínu afar mikinn áhuga. Ófáir vita eitthvað um kreppuna og spyrja með áhyggjusvip hvernig allt gangi. Ég fullvissa þau að sjálfsögðu að allt sé á réttri leið en allir ættu engilega að heimsækja landið og kaupa föt og íslenska hönnun og skella sér í veiði! Hér eru afar fáir sem ná því hvað ég heiti í fyrstu atrennu, ekki einu sinni Finnar geta sagt þetta rétt! Ég veit ekki hvort þetta er uppgerð, fólk verður gjarnar kindarlegt þegar ég segi að þetta sé bara Hilda á íslensku!
Ég er byrjuð á finnskunámskeiði og það gengur bara vel. Ennþá! Þetta er fyndnasta mál í heimi. T.a.m. er hér bar sem heitir Bar Kuka.
Læt það duga að sinni.
Hildur
Ps. Já Halla. Moi þýðir hæ en moi moi þýðir bless :)
Hæ, hæ, gaman að lesa fréttir og við hlökkum til að sjá myndir frá þér.
ReplyDeleteKossar og knús, frá amogaf.
Bar Kuka....fliss. ;)
ReplyDeleteÞungarokk segirðu, úff ég veit ekki.
Sendu mér nú skype nafnið þitt í e-maili svo ég geti talað almennilega við þig.
Knús og kossar,
María